Fagotterí – frumflutningur / premiere
Fimmtudaginn 16. febrúar verður frumfluttur fagottkvartettinn Fagotterí eftir Ísfirðinginn Jónas Tómasson. Frumflutningurinn fer fram í Mengi, á tónleikum í tilefni af opnun nýs vefs um íslenska fagotttónlist. Jónas samdi Fagotterí í tilefni þess að til stóð að halda fagottnámskeið á Ísafirði í júní 1991. Tveir kaflar úr verkinu voru fluttir á lokatónleikum námskeiðsins en kvartettinn verður í fyrsta sinn fluttur í heild sinni á tónleikunum í